27.6.2008 | 19:53
Shopoholic
Ég heiti Guðrún og ég er Shopoholic... Mér tekst ekki að fara í bæinn bara til tess að kaupa maskara heldur kem ég heim með 6 fulla poka með alls skonar skóm, skarti og fatnaði... og líður svo VEEEEL!! Góð kaup sem ég gerði í dag 
3 pör af skóm, einar fínar stuttbuxur, tvo boli, 5 maskara (3 á tilboði) og fullt annað snyrtidót sem ég hef ekkert með að hafa en tad var ódýrt, 2 pör bikiní, 4 eyrnalokka, 4 hálsmen og ég skal segja ykkur tad að ég er örugglega að gleyma einhverju...
Allt tetta á rúmar 1.800kr sænskar (ca.24.000ISK) á ég nokkuð að hafa samviskubit?
........................
Kannski tegar ég sé tetta í íslenskum krónum... ég hefði getað fengið miða heim!! 
OH!
Ferðalög | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.6.2008 | 18:07
Loksins blogg...
Jæja, þá blogga ég loksins aftur, ég veit að ég er ekkert dugleg að þessu, það er bara að sætta sig við það ;o)
það er samt fullt búið að gerast... ég er orðin einhleip aftur í fyrsta sinn á átta árum og ég þarf einhvernveginn að læra á það.. haha..

Ég er ný komin frá íslandi úr heimsókn og það var svo æðislegt að maður er alveg að íhuga það að flytja heim aftur... sjáum til ;o)
Svo förum við mamma, Sara og Goði kærastinn hennar til Krítar núna í júli og ég hlakka svooooooooo til!! Kemur eflaust myndir hingað á bloggið eða bara á Facebookið mitt.. eða Myspacið ;o)
Jæja, svo er meira, en ég verð bara að blogga aftur seinna og segja frá ;o)
Knúsiknús
Ferðalög | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.12.2007 | 18:21
Fréttir af mér!
Hæ hæ!
Nei, djók... það er ekkert að frétta af mér ;o)
Ég bara vinn og vinn og hef það kósý í jólastemningu um kvöldin... Kveiki öll mín kertaljós í stofunni og drekk "glögg" og ét piparkökur og "lussebullar". Ahhhh.... jólin... sakna bara íslensku jólalögin til þess að fullkomna þessa Sænsk-íslensku jólastemningu ;o)
Að vísu var ég í danmörku um helgina með vinnunni að skoða nýju línuna hjá BoConcept. ÞAÐ VAR ÆÐI GAMAN!!!! Það er langt ferðalag til Herning (Aarhus) en það var þess virði ;o) Alveg eins og í fyrra var það góður matur og frír bar, og góður DJ svo það var partí heilu nóttina!! Munurinn með í fyrra var að ég keypti magatöflurnar þegar á laugardaginn og borðaði þær allt kvöldið svo ég varð ekki eins "veik" daginn eftir, og það var nú bara gott ;o)
Allevega var ég í dag að reyna að kaupa eitthvað af jólagjöfum, en það varð bara 1 í þetta skiptið... fékk þó fullt af hugmyndum ;o)
Hlakka svooo til jólana!! ;o)
Hafið það gott!
Kossar og jóóólaknúúúúúúúúsar ;o)
Ferðalög | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.7.2007 | 18:35
Sara farin frá mér!! ;o(
Þetta gekk ALLTOF fljótt fyrir sig... Mér finnst eins og bæði amma og Sara hafi ekki fyrr komið en þurft að fara frá mér aftur elsku dúllurnar mínar!!! KNÚSIKNÚSIKNÚS!!!!!!
En við höfðum það æðislega fínt finnst mér! Útaf veðrinu hvíldum við okkur mest og horfðum á myndir, kýktum í búðir og fórum á Gröna Lund Tívolí á afmælisdaginn hennar 8.júlí (15 ÁRA STELPAN
)
Svo auðvitað kúruðum við og leiktum með ketlingana
sem verða 5 vikna á morgun.
Hef sett in fleiri myndir af ketlingunum!
![]()
Ferðalög | Breytt s.d. kl. 18:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.6.2007 | 16:09
Ketlingarnir þrír komnir!! ;o)
Ludmilla er búin að eiga og það urðu þrír litlir hnoðrarar af því!! Það sést nú ekki svo vel, en mér sýnist þetta vera einn strákur og tvær stelpur
Hún átti á fimmtudagskvöldið 14.júní.
Ludmilla er rosalega dugleg og hún vaktar þá allann daginn, og þeir eru að verða feitir. Ég setti inn myndir á: http://gunnatunna.blog.is/album/ketlingar/
Núna verða þeir hjá mér þangað til þeir eru 12 vikna og þá má ég selja þá, það verður samt erfitt!!
Set inn fleiri myndir seinna!!
Svo hlakka ég líka til föstudags þegar ég fer í frí og ég á líka afmæli þá (22.júní) og svo kemur Sara litla dúllan mín 26:a!!!! ![]()
Heirumst!!! ![]()
Ferðalög | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.6.2007 | 13:00
Veikindi... ;o(
Uff... hvað mér leiðist! Ég er búin að vera veik í viku og það er ekkert skemmtilegt
Það er svo gott veður úti, hitinn búin að ligga á ca.+25°C en ég hef ekkert getað notið þess nema gegnum gluggann.
Ludmilla er núna gengin um 8½viku og mun eiga hverri stundu! Ég er svo stressuð en hlakka samt mjög til að fá litlu krúttin í heiminn!!
Það er svo æðislegt á morgnanna og kvöldin þegar hún vill knúsast þá finnur maður hverning það hreyfist þarna inní mallanum!!!! KRÚTT..
Ég set in nokkrar myndir núna, en minni á þeirra eigin síðu: cougar.blog.is þar sem ég mun setja inn fullt af myndum þegar litlu krúttin koma.
Svo er allt að fara að ske!! Amma mín kemur núna helgina 15.júní og er til 18:a hjá mér
KNÚÚÚÚSAR
Svo fer ég í sumarfrí 22.júní sem er afmælisdagurinn minn nr. 24 og svo líka "midsommarafton" hér á landi!
Svo kemur hún Sara litla dúllan mín og er hjá mér í tvær vikur frá 26.júní til 11.júlí, hún á afmæli 8.júlí þá gerum við eitthvað skemmtilegt!!
Þetta verður æðisleg byrjun á sumrinu og ég hlakka svo til!!!
LOVE YOU!!! KNÚSIKNÚÚÚÚÚS!!! ![]()
Ferðalög | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.5.2007 | 07:06
Ludmilla ólétt!!
Hæ öllsömul!!
Ég veit, langt síðan ég bloggaði síðast... ætla að byrja smátt aftur ;o)
Smá fréttir:
- Ludmilla ólétt, komin í 6:viku (3 vikur eftir)
- Komin í nýju íbúðina og myndir komnar inn undir mai2007.
Fleir fréttir bráðlega, þarf að skjótast í vinnuna...
KNÚÚÚÚÚSAR!!! ![]()
Ferðalög | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.1.2007 | 12:48
Stelpukvöld ;o)
Hæ sæta fólk!!
Hér er voða lítð að frétta, en ég ætla samt að blogga þar sem það var svo ógurlega langt síðan ![]()
Við vinnuvinkonurnar áttum lítið stelpukvöld núna á laugardaginn þar sem við borðuðum burritos og gerðum okkur fínar og fórum til "Garbo" að dansa. Mér líður eins og kelling þegar við förum á svona staði því mér finnst alltaf vera alltof mikið fólk og þrengsli, sem mér finnst vera afar óþægilegt..heheh.... en við dönsuðum og skemmtum okkur vel við: Sophia, Pernilla og Rebecca. Hárgreiðslukonan okkar Martina var með okkur í Burritos, en hún beilaði á djammið. Hún er s.s. hárgreiðslukonan OKKAR því við höfum allar farið til hennar (nema Rebecca en hún er á leiðinni) hihih... Set inn mynd á nýju hárgreiðslunni minni, ætla samt líka að setja í mig smá lit líka seinna...
Svo vorum við að skaffa okkur nýja tölvu... Sony vaio vgn-fe21m: http://www.vaio-link.com/specifications/specifications.asp?l=en MEEEEGA TÖFF TALVA!!! Nú er svaka auðvelt fyrir mig að skypa, segið bara til fólkið mitt!!
Ég blogga meira næst þegar ég hef eitthvað fleira fréttnæmt að færa...
P.S. mér finnst alltaf voða gaman að fá athugasemdir eða skilaboð í gestabókina... bara svo þið vitið hvað þið eigið að gera næst ![]()
Herumst!!! Knúsar ![]()
Ferðalög | Breytt s.d. kl. 12:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.1.2007 | 11:16
Allir þreyttir!!
Já, það eru svakalegir tímar hérna! Fólk er síkvartandi yfir þreytu, þunglyndi, orkuleysi... Ég sjálf er að reyna að hrista þetta af mér og er aðeins byrjuð aftur að "gym"-mast á morgnanna og það er æði... Það er bara þetta sí myrkur sem kæfir fólk... Það er myrkur þegar maður mætir í vinnu og myrkur þegar maður kemur heim... og enginn snjór til að lýsa upp, bara rigning og rok... uss... Maður er orðinn dálítið pirraður á þessu... ![]()
En það styttist í sumarið og ljósið og við verðum bara að hrista þetta af okkur, standa upp og byrja að hugsa betur um sjálf okkur, gera skemmtilega hluti byrja að hlakka til sumarsins!! ![]()
Knúúúúúúúúúúsar!!! ![]()
P.S. Setti in nokkrar myndir, bara pínu smá... ;o) D.S.
Ferðalög | Breytt s.d. kl. 11:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.12.2006 | 17:31
Svo eru það áramótin á morgun, já.... ;o)
Nú er það liðin hálf vika síðan ég fór frá klakanum og ég verð að segja það að mér finnst það svo leiðinlegt að ég er þegar farin og komin aftur frá fólkinu mínu!!! Ég var búin að hlakka svo til og svo er þetta svo fljótt að líða og maður veit ekki fyrr en tíminn er búin og maður þarf að fara heim.... hmmmm ![]()
Ég verð að koma fljótt aftur!!
Nú er ég með langa helgi, eða 4 daga frí!! ÆÐI!! Ég hitti Lauru, Maríu och Noomi á veitingarstað hér nálægt í gær og við höfðum það æðislega gott og yndislegt og ég var komin heim um 3... Við ætlum að reyna að taka upp sambandið aftur, það var svo æðislegt að hittast svona, það var eins og við hefðum bara hisst í gær!!! Fyndið!!
Noomi hef ég reyndar alltaf haldið sambandið við, en hinar stelpurnar í "genginu" höfum nánast ekkert haft samband í 8 ½...
Jæja ég ætla að kýkja til hennar Noomi núna...
Heyrumst sæta fólk!!!! KNÚÚÚÚÚÚÚÚÚÚÚÚÚÚÚÚÚÚÚSAR!!!! ![]()
![]()
Ferðalög | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ég og Sara mín!!!










